Málefni fatlaðra

Laugardaginn 12. desember 1998, kl. 17:52:56 (2229)

1998-12-12 17:52:56# 123. lþ. 39.2 fundur 331. mál: #A málefni fatlaðra# (yfirfærsla til sveitarfélaga) frv. 156/1998, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 39. fundur, 123. lþ.

[17:52]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Eins og fram hefur komið var tillögunni beint til hæstv. heilbrrh. en ekki til mín. Það er skýringin á því að ég hef kannski ekki fylgst nógu vel með þessu máli. Það er eðlilegt að skoða þessa ábendingu í tengslum við lagasetningu um félagsþjónustu sveitarfélaga. Ég get komið því áleiðis til nefndarinnar, hafi hún ekki nú þegar tekið á málinu.