Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Ég ætla ekki að tefja umræðu um þetta mál en ég tel mjög brýnt að vekja athygli á því að byggingarsamvinnufélög eru þannig að þar er tekið við peningum af fólki og þeim seinna ráðstafað til byggingar. Þetta getur og hefur valdið því að peningar misfarist. Þess vegna er talið í öðrum löndum í Evrópu mjög brýnt að hafa sterkt eftirlit með þessum félögum sem starfa oft og tíðum á einstaklingsgrundvelli. Ég mun því í hv. félmn. sem fær þetta mál til umsagnar vekja athygli á því og fá það í gegn að skoðað verði hvort ekki þurfi eftirlit Fjármálaeftirlitsins með þessari starfsemi.