Útflutningur hrossa

Mánudaginn 14. desember 1998, kl. 13:18:30 (2243)

1998-12-14 13:18:30# 123. lþ. 40.1 fundur 346. mál: #A útflutningur hrossa# (útflutningsgjald) frv., PHB
[prenta uppsett í dálka] 40. fundur, 123. lþ.

[13:18]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Örstutt. Samkvæmt þessu frv. er gert ráð fyrir því að tekjurnar verði 3,3 millj., það eru öll ósköpin, 3,3 millj. á ári og þar af eigi 5% að renna í Stofnverndarsjóð, svona 160 þús. kr. Það er ætlað til þess að kaupa gæðinga til að forða þeim frá útflutningi. Ég held að fyrir 160 þús. kr. kaupi menn bikkju.