Fjárlög 1999

Mánudaginn 14. desember 1998, kl. 14:05:04 (2254)

1998-12-14 14:05:04# 123. lþ. 40.7 fundur 1. mál: #A fjárlög 1999# frv. 165/1998, GGuðbj (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 40. fundur, 123. lþ.

[14:05]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Herra forseti. Hér er lagt til að fjármagn til framkvæmdaáætlunar um jafnréttismál verði margfaldað eða hækkað úr 3,4 millj. í 14 millj. Það er til lítils að setja fram metnaðarfulla jafnréttisáætlun án þess að henni fylgi nægilegt fjármagn. Slíkt er sýndarmennskan ein. Engin leið er að samþætta jafnréttismál inn í alla málaflokka með tilheyrandi fræðslu, uppstokkun, breytingum og rannsóknum nema ætla til þess nægilegt fjármagn. Því er þessi tillaga flutt. Ég segi að sjálfsögðu já.