Beiðni um fundarhlé

Þriðjudaginn 15. desember 1998, kl. 14:09:47 (2295)

1998-12-15 14:09:47# 123. lþ. 41.93 fundur 172#B beiðni um fundarhlé# (um fundarstjórn), HG
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 123. lþ.

[14:09]

Hjörleifur Guttormsson:

Virðulegur forseti. Það er vissulega góðra gjalda vert að loks skuli léð máls á að funda um málið. Ég vildi benda hæstv. forseta á að ég held að það sé alveg einsdæmi að óbein skilaboð um viðbrögð formanna þingflokka komi í gegnum hæstv. forseta en þau séu ekki mælt af ræðustóli. Mér finnst a.m.k. lágmark að formenn þingflokka stjórnarflokkanna hafi fyrir því að koma í stólinn til þess að ræða við þingmenn og hæstv. forseta.