Beiðni um fundarhlé

Þriðjudaginn 15. desember 1998, kl. 14:12:01 (2297)

1998-12-15 14:12:01# 123. lþ. 41.93 fundur 172#B beiðni um fundarhlé# (um fundarstjórn), Forseti RA
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur, 123. lþ.

[14:12]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Forseti ítrekar það sem hann hefur þegar sagt. Hann hefur ekki séð ástæðu til að gera sérstakt hlé ef ekki eru neinar óskir um það af hálfu stjórnarmeirihlutans. Hann óskar beinlínis eftir því að málið sé sett þegar á dagskrá. Nú liggur fyrir að hæstv. heilbrrh. hefur stungið upp á að gert verði 15 mínútna hlé til þess að ræða þinghaldið almennt, ekki bara þetta sérstaka mál, og verður það nú gert. Nú verður gert hlé til kl. hálfþrjú.