Frsm. 2. minni hluta heilbr.- og trn. (Bryndís Hlöðversdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég átti reyndar erfitt með að átta mig á spurningum hv. þm. þannig að ég held ég verði að biðja hana um að koma aftur og skýra betur hvað hún spyr mig um. Í fyrsta lagi hvort ekki sé rétt að þetta hafi verið rætt í nefndinni. Jú, þetta var rætt í nefndinni. En ég tel ekki að það hafi verið nægilega rætt í nefndinni.
Í öðru lagi spyr hún hvern sé verið að vitna í þegar talað er um talsmann tölvunefndar í nál. minni hlutans. Það hefði kannski verið réttara að taka það fram að þar er verið að vitna í forsvarsmann eða talsmann nefndarinnar, Sigrúnu Jóhannesdóttur. Ég var ekki á fundinum, herra forseti, þannig að ég hlustaði ekki sjálf á þessi ummæli en aðrir í minni hlutanum sem þar voru staðfesta að vitnað sé í Sigrúnu Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra tölvunefndar.