Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Það er þyngra en tárum taki að hlusta á minn ágæta félaga, hv. þm. Össur Skarphéðinsson, engjast í stólnum út af þessu máli sem fram að þessu hefur verið eitt af hans uppáhaldsmálum, þ.e. að auka möguleika íslenskra vísindamanna til þess að stunda störf sín. Á örfáum vikum hefur honum tekist að snúast gegn frv. sem hann hafði fyrr á árinu lýst nánast stuðningi við. Þess vegna er sorglegt að heyra hvernig ágætum vísindamanni eins og hv. þm. hefur tekist að snúa þessu máli í höndum sér og gera í huga sínum stórskaðlegt íslensku vísindasamfélagi.
Eins og hv. þm. og minni hlutinn hefur gert í þessum umræðum þegar inn í umræðuna var dregið fyrirtæki sem heitir Íslenskar hveraörverur, á þeirri forsendu að þar væri verið að veita eitthvert sérstakt einkaleyfi vegna þess að það tengdist Íslenskri erfðagreiningu. Þetta hefur leitt til þess að störf 10 vísindamanna sem þar hafa unnið í 10 ár eru í hættu og störf 20 annarra vísindamanna sem var meiningin að ráða til þessa fyrirtækis eru einnig fyrir bí vegna umræðu sem hefur farið á algerar villigötur í þinginu og er að skemma fyrir vísindasamfélaginu stórkostlega möguleika sem fram að þessu hafa verið raunverulegir. Það er virkilega sorglegt að vita til að þetta mál skuli hafa farið svo að í dag virðist sérleyfi sem þetta fyrirtæki átti að fá vera fyrir bí vegna málflutnings minni hlutans í þinginu. Ég spyr hv. þm.: Er það virkilega meining hv. þm. og minni hlutans að koma í veg fyrir að fyrirtæki af þessu tagi nái fótfestu hér á landi og að vísindamenn sem starfa á þessum vettvangi geti sinnt störfum sínum?