Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Þriðjudaginn 15. desember 1998, kl. 23:50:50 (2391)

1998-12-15 23:50:50# 123. lþ. 42.2 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, Forseti RA
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur, 123. lþ.

[23:50]

Forseti (Ragnar Arnalds):

Eins og hér hefur komið fram var haldinn fundur með formönnum þingflokka og forseta fyrr í kvöld. Ekki náðist samkomulag á þeim fundi en forseti leyfir sér að vona að viðræðum hafi þar með ekki verið slitið og að frekari viðræður eigi sér stað um málsmeðferð og þinghaldið. En á þessu stigi verður ekkert fullyrt um það hvenær fundi lýkur í kvöld.