Siv Friðleifsdóttir:
Virðulegur forseti. Þetta mál hefur fengið gífurlega mikla umfjöllun bæði í þinginu og í heilbr.- og trn., góða og mikla umfjöllun. Það er ekki rétt að illa hafi verið staðið að málum. Það er alrangt og ég vísa því á bug. Hér er um framfaramál að ræða og því hefur ekki verið breytt í neinum grundvallaratriðum. Það hafa verið gerðar á því brtt. sem eru allar til bóta. Ég segi því nei.