Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 17. desember 1998, kl. 11:26:19 (2461)

1998-12-17 11:26:19# 123. lþ. 44.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, ÁRJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 123. lþ.

[11:26]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Þetta mál er alls ekki fullunnið, reyndar hálfunnið. Fjölmörg atriði hefðu þurft nánari athugunar við eins og brtt. okkar jafnaðarmanna við 2. umr. sýna og nál. sem fylgdi þeim. Gerræðisleg vinnubrögð í nefndinni sem fræg eru orðin komu í veg fyrir það og því styð ég heils hugar tillöguna um að vísa málinu frá. Ég segi já.