Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Það verður erfitt að fyrirgefa þingmönnum stjórnarmeirihlutans á þeirri forsendu að þeir viti ekki hvað þeir gjöri. Um þetta mál hafa alþingismönnum borist yfirlýsingar og ábendingar frá samtökum vísindamanna og frá mannréttindasamtökum, bæði hér á landi og utan úr heimi. Þessar yfirlýsingar hafa verið studdar gildum rökum og eru á einn veg. Allir þessir aðilar eru andvígir þessu frv.
Það ræddi við mig maður í morgun og sagði að ríkisstjórn og Alþingi væru að taka sér vald sem því ekki bæri siðferðilegur réttur til. Undir þetta tek ég og greiði atkvæði gegn þessu frv.
En þetta eru ekki mín síðustu orð um þessi lög sem byggja á skammsýni og grunnhyggni og því miður einnig græðgi. En hvað peningana snertir þá vekur það furðu hve auðvelt virðist að slá ryki í augu þeirrar ríkisstjórnar sem nú stýrir landi okkar, þeirrar sem á að gæta hagsmuna almennings. Hún er að kaupa norðurljósin og telur sig hafa himin höndum tekið. Já, mikil er trú þín, hæstv. forsrh.
En ég vil óska sama ráðherra til hamingju með Framsfl. Til að gleðja hann þarf ekki mikið, ekki annað en fallega ól um hálsinn. Ég segi nei.