Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Ég harma þá atburði sem gerðust í nótt. Ég bendi á að árás Bandaríkjamanna og Breta á Írak nýtur ekki stuðnings alþjóðasamfélagsins og fjölmargar þær þjóðir sem studdu fjölþjóðaherinn í Persaflóastríðinu hafa tekið afstöðu gegn þessum atburðum. Tilgangur þeirra er að sögn að hrekja harðstjórann Saddam Hussein frá völdum. Ég sé ekki hvernig það má verða með þeim loftárásum sem gerðar hafa verið nema tilgangurinn sé að fylgja þeim eftir með enn öflugri hernaðaraðgerðum. Ég trúi því ekki að það séu áform Bandaríkjamanna og Breta þegar helgasti mánuður múslima er að renna upp og heilagasta hátíð kristinna manna. Ég vil spyrja hæstv. utanrrh.: Mun utanrrh. og ríkisstjórn Íslands styðja það að loftárásunum verði fylgt eftir með enn öflugri hernaðaraðgerð?
Herra forseti. Við megum ekki gleyma því að markmið þeirra miklu blóðfórna sem færðar voru í Persaflóastríðinu var að setja Saddam Hussein af. Þeim hernaðarsigri sem þar vannst var ekki fylgt eftir til að ná því markmiði. Þvert á móti var sú ákvörðun tekin að sleppa úr herkví öflugasta herliði Saddams Husseins sem hann síðan notaði til þess að ganga á milli bols og höfuðs á andstæðingum sínum í eigin heimalandi og ná völdum að nýju. Ekki má gleyma því að það er ein ástæðan fyrir því að þessi harðstjóri situr að völdum. Þau ríki sem nú hafa hafið árás á Írak til að setja Saddam Hussein af eiga sjálf verulega sök á því að hann hélt völdum. Hann gekk milli bols og höfuðs á andstæðingum sínum og hann hóf útrýmingarstríð gagnvart kúrdíska þjóðarbrotinu í heimalandi sínu.