Fjárfestingarbanki atvinnulífsins

Fimmtudaginn 17. desember 1998, kl. 16:56:23 (2538)

1998-12-17 16:56:23# 123. lþ. 44.17 fundur 229. mál: #A Fjárfestingarbanki atvinnulífsins# (sala hlutafjár) frv. 167/1998, SvG (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 123. lþ.

[16:56]

Svavar Gestsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil taka undir þær óskir um að hlé verði gert á þessum fundi í nokkrar mínútur í viðbót til þess að menn geti skipulagt þingstörfin aðeins og ég vil upplýsa forseta um að engar viðræður eru í gangi um þinghaldið eins og er þannig að það er misskilningur að verið sé að þreifa á einhverjum lausnum af nokkru tagi. Ég mælist því til þess að gert verði hlé á fundinum þannig að hægt sé að ákveða hvaða mál á að taka fyrir. Það er auðvitað alveg óþolandi í sambandi við þetta mál um Fjárfestingarbanka atvinnulífsins að verið sé að skjóta því inn á milli af og til eins og uppfyllingarefni eins og mér sýnist vera ætlunin að gera núna.