Margrét Frímannsdóttir (andsvar):
Virðulegur forseti. Hæstv. sjútvrh. veit að margar tillögur hafa verið í umræðunni, m.a. þær að takmarka veiðar bátanna á grunnslóð. Eins eru uppi þær hugmyndir að ekki eigi að takmarka veiðar þeirra frá því sem er. Ýmsar tillögur hafa komið fram, bæði af hálfu Alþb. og Alþfl. og Kvennalistans um það hvernig skuli staðið að þessum málum. Við erum tilbúin að leggja í það vinnu og ekkert ómerkilegt við það að bjóðast til að fara í samstarf allra flokka til að ráða fram úr þessum vanda.
Sjálfstfl. hefur engar tillögur í þessum efnum. Að minnsta kosti stendur hann ekki heill að baki því frv. sem hér er. Það hefur komið fram harkaleg gagnrýni af okkar hálfu en hún er ekki hálft á við það sem hefur komið fram frá þingmönnum Sjálfstfl. sem ætla að berjast af fullri hörku gegn þeim tillögum sem hæstv. sjútvrh. hefur lagt fram. Þær tillögur hafa ekki verið mikið ígrundaðar innan Sjálfstfl. áður en þær voru lagðar fram hér, a.m.k. ekki reynt að ná fram sátt.
Við viljum sátt og erum með tillögur. Við höfum fengið 20 mínútur til þess að fara yfir sjónarmið okkar. Ég reyndi að gera það hér, ekki síður en hæstv. sjútvrh., og fór yfir þær tillögur sem hann og ríkisstjórnin hæstv. leggur fram. Þær eru ekki lagðar fram af Sjálfstfl. Ef málflutningur sjálfstæðismanna í gegnum tíðna er skoðaður þá er þar hvorki einhugur né ein stefna sem ríkir í þessu. Það er kannski kominn tími til, hæstv. forseti, að við myndum þessa samstöðu, ekki bara innan Sjálfstfl., Alþb., samfylkingar, heldur þjóðarsátt um málið. Leið ríkisstjórnarinnar er ekki í þá átt.