Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 18. desember 1998, kl. 17:24:02 (2622)

1998-12-18 17:24:02# 123. lþ. 45.3 fundur 343. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðileyfi o.fl.) frv. 1/1999, 344. mál: #A veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands# (grásleppuveiðar) frv., LB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 45. fundur, 123. lþ.

[17:24]

Lúðvík Bergvinsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get upplýst að skoðun mín á þessu máli er kristaltær. Ég tel að við eigum að vera með aflamarkskerfi sem stenst ákvæði stjórnarskrárinnar. Það er ekki flóknara en það.