Frumvörp um almannatryggingar

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 10:04:30 (2689)

1998-12-19 10:04:30# 123. lþ. 46.91 fundur 181#B frumvörp um almannatryggingar# (aths. um störf þingsins), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 123. lþ.

[10:04]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Dagskrá þessa fundar liggur þegar fyrir og ekki um það að ræða að mál verði tekið á dagskrána eftir að fundur er settur. En það verða fleiri fundir haldnir í dag og þetta mál sem verður byrjað á á þessum fundi verður rætt sérstaklega strax eftir framsögu hæstv. ráðherra. Um það er samkomulag. Nægir þetta ekki?