Almannatryggingar

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 10:32:40 (2696)

1998-12-19 10:32:40# 123. lþ. 46.13 fundur 365. mál: #A almannatryggingar# frv. 149/1998, ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 123. lþ.

[10:32]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég var ekkert að spyrja um það hvort fulltrúar Öryrkjabandalagsins hefðu komið á marga fundi í ráðuneytinu. Ég var að spyrja: Hafa þeir verið hafðir með í ráðum um þetta frv.? Og til þess að hafa spurninguna eins skiljanlega og unnt er þá spyr ég hæstv. heilbrrh.: Hefur frv. í þeirri gerð sem það er núna verið formlega borið undir Öryrkjabandalag Íslands? Það er einfalt að svara þessu, herra forseti.