Almannatryggingar

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 10:38:03 (2703)

1998-12-19 10:38:03# 123. lþ. 46.13 fundur 365. mál: #A almannatryggingar# frv. 149/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 123. lþ.

[10:38]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við erum að stíga stórt skref núna til að minnka þessa skerðingu, skref sem aldrei hefur verið stigið fyrr. Það er mikilvægt að hv. þingmenn geri sér grein fyrir því.

Hv. þm. spyr hvort ég sé tilbúin til þess að lögfesta að öll skerðing detti niður. Ég tel að við séum búin að ákveða verulegar bætur fyrir árið 1999. Ég ætla ekki að binda hendur næstu ríkisstjórnar lengur en næsta ár hvað þetta varðar.