Fjáraukalög 1998

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 11:03:00 (2714)

1998-12-19 11:03:00# 123. lþ. 46.14 fundur 173. mál: #A fjáraukalög 1998# frv. 162/1998, Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 123. lþ.

[11:03]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef í rauninni ekki neinu við þessar skýringar að bæta. Við vitum hvernig málið hefur þróast gegnum tíðina. Það hefur verið tekin um það pólitísk ákvörðun að ganga svona frá því. Ég heyri skoðanir hv. þm. og hef í raun ekki neinu við mínar skýringar að bæta. Þetta er ákvörðun sem meiri hluti fjárln. og meiri hluti stjórnarflokkanna leggur til, en ég hef heyrt skoðanir hv. þm. á þessu máli.