Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Vesturl. fyrir ljóðalestur hans og ræðu. Ég vildi bara gera athugasemd við eitt atriði sem hann kom inn á í ræðu sinni. Hann orðaði það svo að búnar hefðu verið til tekjur á milli 2. og 3. umr. upp á 3,7 milljarða. Þessar tekjur byggjast á þjóðhagsspá og endurskoðun á áætlunum um sölu eigna, miðað við það markaðsverð sem í gangi er, en hingað til hefur stjórnarandstaðan í hv. fjárln. gagnrýnt okkur fyrir að vera of varfærnir í tekjuspám okkar. Hún hefur talið tekjuhorfurnar betri en við höfum gert ráð fyrir og svo hefur verið hingað til. Ég vona að svo verði áfram, að við séum varfærnir í þessari tekjuspá og tekjurnar aukist eitthvað meira. Þetta er varfærin spá. Ég vil einnig benda á, af því að sagt er að við höfum verið of útausandi og boðið öllum að ganga í sjóðinn, að tekjuafgangur ríkissjóðs hækkar á milli umræðna sem er ekki algengt miðað við spána sem ég tel þó mjög varfærna.