Sturla Böðvarsson (andsvar):
Herra forseti. Það hefur aldrei verið minna atvinnuleysi á Íslandi. Það hlýtur að benda til þess að hagur fólksins sé betri en verið hefur. Hlýtur markmið okkar ekki að vera það að reyna að koma í veg fyrir atvinnuleysi?
Þenslan sem hv. þm. talar um er e.t.v. gleggsta merki þess að Íslendingar hafa trú á því sem stjórnvöld eru að gera. Þeir hafa trú á stöðugleikanum og hafa trú á því að óhætt sé að fjárfesta. Það skiptir miklu máli. Þess vegna er rangt að láta að því liggja að aukin viðskipti, aukinn innflutningur, m.a. til atvinnufyrirtækjanna vegna fjárfestingarvöru og uppbyggingar sem mun síðan leiða til meiri hagsældar fyrirtækjanna og fleiri starfa séu neikvæð tákn. Þetta þarf ekki að vera neikvætt, hæstv. forseti, og þess vegna kemur mér þessi ræða þingmannsins nokkuð á óvart.