Ögmundur Jónasson (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég er að gera grein fyrir því að sú mynd sem dregin er upp af ríkisstjórninni og talsmönnum hennar er falsmynd. Talað er um að ná niður skuldum ríkissjóðs á næstu árum úr 50% af vergri landsframleiðslu niður í 20% en í sömu spám ríkisstjórnarinnar kemur fram að heildarskuldir landsmanna verða hærri, hærra hlutfall en nú er. Þetta er gert á kostnað sveitarfélaganna í landinu vegna þess að ríkið hefur verið að færa þung verkefni yfir til þeirra og á kostnað annarra aðila sem ég gat um áðan.
En það sem mér finnst áhyggjuefni á Íslandi er ef mönnum finnst það gott og til að stæra sig af að atvinnuleysi hér í þessu góðæri verði aðeins, eins og menn orða það, 2,5%. Það eru mörg þúsund einstaklingar og mörg þúsund fjölskyldur vinnufærs fólks sem verður án atvinnu og það af völdum þessarar ríkisstjórnar sem hefur haldið afspyrnu illa á málum.
Eitt finnst mér umhugsunarvert. (Forseti hringir.) Menn tala um að búa í haginn þegar þeir eru að selja eða gefa eignir þjóðarinnar. Þá tala þeir um að verið sé að búa í haginn fyrir framtíðina. (Forseti hringir.) Við ættum að rifja þetta upp, og það geri ég á eftir, hvernig ríkisstjórnin hefur verið að gefa og sett á útsölu dýrmætar eignir íslensku þjóðarinnar.