Forseti (Guðni Ágústsson):
Forseti vill segja um þetta að það heyra það nú allir, hvað sem virðingunni líður, að hv. 2. þm. Austurl., formaður fjárln., hefur fyrir sitt leyti fallist á að að þessu sinni verði umræðan slitin í sundur á þennan hátt því að það er stórt verkefni að ætla að ljúka störfum Alþingis fyrir jól á þeim tíma sem eftir er til miðnættis.