Almannatryggingar

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 16:09:42 (2760)

1998-12-19 16:09:42# 123. lþ. 46.13 fundur 365. mál: #A almannatryggingar# frv. 149/1998, heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 123. lþ.

[16:09]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Fyrir liggur samkomulag um að afgreiða það sem mest er áríðandi varðandi almannatryggingamálið sem hér liggur fyrir þinginu þannig að elli- og örorkulífeyrisþegar fái greitt eftir nýjum reglum þegar í upphafi næsta árs. Ég vil þakka fyrir þá flýtimeðferð sem þetta mál fær væntalega í gegnum þingið.