Ögmundur Jónasson (andsvar):
Hæstv. forseti. Mér finnst það alvarlegt fyrir Alþingi Íslendinga þegar það hendir gaman að dómum Hæstaréttar. Það er reynt að gera grín að þessu máli og hártoga það. Staðreyndin er sú að ríkisstjórnin hefur verið fundin sek um lögbrot. Hún braut lög þegar hún ákvað að flytja Landmælingar ríkisins til Akraness. Það getur vel verið að mörgum finnist ástæða til að hlæja að málinu og gera grín að því en því fólki sem í hlut átti og þótti það vera beitt ofríki og yfirgangi af hálfu stjórnvalda, get ég fullvissað hv. þm. Guðna Ágústsson um, var ekki hlátur í huga. Nú er það staðreynd að dómur hefur verið kveðinn upp í þessu máli í Hæstarétti. Hann hefur komist að raun um að ríkisstjórnin braut lög og þess vegna bregst Alþingi við með þessum hætti. Mér finnst þetta ekki vera gamanmál.