Landmælingar og kortagerð

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 20:39:31 (2805)

1998-12-19 20:39:31# 123. lþ. 47.3 fundur 370. mál: #A landmælingar og kortagerð# frv. 132/1998, StB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 123. lþ.

[20:39]

Sturla Böðvarsson (andsvar):

Herra forseti. Það sem ég vildi segja í andsvari er ekki annað en það að hundsbitið í mínum huga eru álit lögmannanna. Þau voru misvísandi og ekki sama niðurstaða hjá öllum lögmönnum, þannig að það má ekki með nokkrum hætti tengja það við niðurstöðu eða dóm Hæstaréttar. Ég vildi að þetta kæmi fram, enda held ég nú að hv. þm. hafi skilið mig.