Stimpilgjald

Laugardaginn 19. desember 1998, kl. 21:45:38 (2831)

1998-12-19 21:45:38# 123. lþ. 47.22 fundur 151. mál: #A stimpilgjald# (undanþágur frá gjaldi) frv. 157/1998, ÁE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 123. lþ.

[21:45]

Ágúst Einarsson (andsvar):

Herra forseti. Ég vil staðfesta það að ég mismælti mig. Þetta er rétt, við skulum hafa þetta nákvæmt. Í svona málum er betra að það sé alveg á hreinu hvað menn hafi sagt. Við erum að tala um vaxtabótaþak. Reki menn sig upp undir --- hæstv. ráðherra ítrekaði að ef slík staða kæmi upp þá fyndu menn á því lausn. Við vitum kannski ekki hver hún er einmitt í dag, en skilningurinn er ljós af beggja hálfu hvað þetta mál áhrærir.