Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Ágúst Einarsson):
Herra forseti. Hér er til síðustu umræðu frv. um að heimila ríkisstjórninni að selja 51% í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. Þetta hefur verið rætt töluvert í þinginu og flest sjónarmið komið fram. Þó vildi ég að lokum nefna tvö eða þrjú atriði.
Í fyrsta lagi vil ég minnast á þá fullyrðingu hæstv. viðskrh. áðan sem hefur áður heyrst, að mikilvægt væri að afgreiða þetta mál vegna þess að það tengdist fjárlagaafgreiðslunni. Þetta er ekki rétt, herra forseti. Að vísu er í fjárlagatillögunum gert ráð fyrir tekjum af sölu eignarhluta ríkisins upp á 8 milljarða á næsta ári. Það var hækkað með tillögum í dag upp á 1,3 milljarða og tekjuaukning ríkissjóðs vegna sölu eigna er 3,7 milljarðar. Hluti af því er vitaskuld vegna fyrirhugaðrar sölu á 51% í Fjárfestingarbanka atvinnulífsins.
Hins vegar er það ekki svo, herra forseti, að ef þetta frv. verði ekki afgreitt fyrir áramót, þá sé á einhvern hátt stefnt í hættu áformum ríkisstjórnarinnar um að láta fjárlagafrv. standast. Ljóst er að málið er komið til lokaafgreiðslu í þinginu. Það er meiri hluti fyrir málinu og að því leyti gætu menn, ef menn hefðu lokið hinni málefnalegu umræðu og þinglegri meðferð, vitaskuld greitt um það atkvæði og afgreitt. Menn geta hins vegar líka látið málið liggja, eins og oft vill verða með mál þegar líður að jólum. Það er ekkert í hættu varðandi þetta mál fyrir ríkisstjórnina þó að málið yrði afgreitt þegar þing kemur saman --- þing á að koma saman á óvanalegum tíma, 6. janúar --- eða fyrri hlutann á næsta ári. Ég bendi á að í greinargerðinni með frv. er sagt að selja eigi eignarhlutann á fyrri hluta næsta árs. Það sem við höfum gagnrýnt hvað mest í frv. er hin opna heimild til sölu á þessu 51%. Megingagnrýni okkar á þetta frv. hefur verið sú að ekki skuli gefin nákvæmari lýsing á því hvernig standa eigi að sölu þessara 51%. Það er megingagnrýnisatriði vegna þess að við höfum fyrir okkur við sölu áður, hvort sem við köllum það kennitölusöfnun eða eitthvað annað, aðferðir sem ekki hafa gengið eftir eins og menn ætluðu. Hæstv. viðskrh. sagði rétt áðan að kennitölusöfnunin gengi beinlíns gegn stefnu ríkisstjórnarinnar. Það er því alveg ljóst og þarf ekki að fara um það sterkum orðum að þetta fór ekki alveg eins og menn ætluðu. Það sem við höfum lagt áherslu á í okkar málflutningi er að brýnt sé að meta reynsluna, bíða eftir upplýsingunum sem verða til staðar þegar menn hafa greitt inn, t.d. með fjölda hluthafa og annað slíkt. Það hefur þó að hluta til verið upplýst. Bankaeftirlitið er að skoða tiltekna þætti í þessu máli en jafnframt hefði mátt fara að því sem við lögðum til í minni hluta efh.- og viðskn. við 2. umr. Í nefndaráliti okkar segir, með leyfi forseta:
,,Í ljósi þess að framkvæmd einkavæðingarinnar og kennitölusöfnunin eru komnar í algerar ógöngur er brýnt að endurskoða meðferð þessara mála frá grunni. Því leggur minni hlutinn til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar enda sýna atburðir síðustu vikna að málatilbúnaðurinn er algerlega ófullnægjandi og ekki hægt að fallast á að ríkisstjórnin fái svo víðtækt og opið umboð til þess að ráðstafa eigum almennings.``
Þetta les ég beint úr áliti okkar stjórnarandstæðinga við 2. umr. málsins. Sú tillaga sem fylgdi þessu, að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar til að koma slíku ferli af stað, var felld. Það var eðlileg lýðræðisleg niðurstaða sem ekkert er við að segja. Við viljum hins vegar, þegar kemur að lokum þessarar umræðu, draga skýrt fram meginþætti andstöðu okkar. Fyrst og fremst teljum við að þetta frv. hefði átt að útbúa með skýrari reglum varðandi fyrirhugaða sölu. Það er meginatriði málsins. Það hefði formlega ekki skipt máli og ég veit að hæstv. forseti getur alveg staðfest það. Í fjölmörg ár hafa fjárlagafrumvörp verið afgreidd og síðan verið sett lög á vorþingi sem leiða annaðhvort til útgjalda eða tekjuaukningar og hafa tengst viðkomandi fjárlögum. Ekkert í fjárlagafrv., t.d. í heimildargrein 7. gr. fjallar um þennan þátt. Þess vegna hefði málið mátt bíða en aðalgalli málsins er þó sá að við fengum ekki meiri hluta fyrir því að sett yrðu skýrari fyrirmæli og leikreglur um sölu á þessu 51%.