Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég tel að mikil þörf sé á því að treysta atvinnulíf um land allt, mikil þörf á því og ég hafna því ekki að menn geti átt samvinnu við útlendinga um einstaka þætti í atvinnuuppbyggingu. En ég trúi ekki á töfralausnir og ég hefði aldrei lagt það til eða látið mér detta það í hug að ætla að fara að setja niður álbræðsluhlussu á Austurlandi með 500 þúsund tonna framleiðslugetu, eins og er ramminn um þá hugmynd sem hv. þm. var að nefna og ber auðvitað ábyrgð á með öðrum stjórnarliðum sem hafa tekið þar ákvarðanir og kannski sem þingmaður í kjördæminu ekki síst. Ég hefði aldrei brugðið á slík ráð vegna þess að ég tel að það skapi fleiri vandamál heldur en það leysir ef það væri í boði. En menn tóku kannski eftir því hvernig hv. þm. orðaði horfurnar í þeim efnum. Það væri ekkert brugðið út af því viðræðuferli sem ákveðið hafi verið. Þetta er platan sem er spiluð á Austurlandi og víðar og á að hugga Austfirðinga til að viðhalda þeirri blekkingu að einhver alvara sé að baki fjárfestingaráformum í þessu efni.
Auðvitað heldur Norsk Hydro áfram við ákveðna rannsóknarþætti sem bundið var fastmælum. Hver er að draga það í efa? Það vita allir sem vilja vita að engar líkur eru á því að einhver fjárfesting komi í kjölfarið af þeirra hálfu í sambandi við þetta mál. En það er búið að gera þetta að því ópíum sem við nefndum áðan að erfitt er að taka það frá fólkinu rétt fyrir kosningar.