Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Vegna orða síðasta hv. þm. þá vil ég endurtaka það sem kom fram í máli mínu að ég væri ekki að vega að þeim einstaklingi sem í hlut ætti. Seta hans sem formanns vísindasiðanefndar er á ábyrgð hæstv. heilbrrh. sem vitandi um þessa stöðu hefur skipað viðkomandi einstakling formann vísindasiðanefndar og hefur ekki boðað neinar breytingar á því.