81. FUNDUR
mánudaginn 8. mars,
kl. 8.30 síðdegis.
Almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður).
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur til umráða 30 mínútur sem skiptust þannig að í fyrstu umferð hafði hver þingflokkur 12 mínútur til umráða, 10 mínútur í annarri og 8 mínútur í síðustu umferð.
Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, þingflokkur óháðra og Framsóknarflokkur.
Ræðumenn Samfylkingar voru í fyrstu umferð Rannveig Guðmundsdóttir, 5. þm. Reykn., og Bryndís Hlöðversdóttir, 8. þm. Reykv.; í annarri umferð Guðný Gubjörnsdóttir, 19. þm. Reykv., en í þriðju umferð talaði Sighvatur Björgvinsson, 4. þm. Vestf.
Ræðumenn fyrir Sjálfstfl. voru Björn Bjarnason menntmrh. í fyrstu umferð; Arnbjörg Sveinsdóttir, 5. þm. Austurl., og Einar K. Guðfinnsson, 1. þm. Vestf., í annarri umferð og Sigríður Anna Þórðardóttir, 3. þm. Reykn., í þriðju umferð.
Ræðumenn þingflokks óháðra voru Ögmundur Jónasson, 12. þm. Reykv., og Kristín Halldórsdóttir, 12. þm. Reykn., í fyrstu umferð; í annarri umferð talaði Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðurl. e., en Kristín Ástgeirsdóttir, 14. þm. Reykv., í þeirri þriðju.
Ræðumenn fyrir Framsfl. voru Halldór Ásgrímsson utanrrh. í fyrstu umferð; Siv Friðleifsdóttir, 4. þm. Reykn., og Magnús Stefánsson, 3. þm. Vesturl., í annarri umferð og Valgerður Sverrisdóttir, 3. þm. Norðurl. e, í þriðju umferð.
[22:46]
Fundi slitið kl. 22:48.
---------------