Ferill 191. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 207 — 191. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um SR-mjöl.
Frá Svavari Gestssyni.
1. Hver voru bein fjárframlög ríkisins til SR-mjöls á hverju ári fyrir sig síðustu tíu ár á föstu verðlagi ársins 1998?
2. Voru þessi fjárframlög endurgreidd og ef svo er, hvernig?
3. Hvert var söluverð hlutabréfa þegar ríkið seldi fyrirtækið?
4. Hvert er núvirði hlutabréfa SR-mjöls hf.?
5. Greiddu kaupendur bréfanna skatt af mismun kaupverðs og söluverðs bréfanna?
Skriflegt svar óskast.