Ferill 310. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 370  —  310. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um fækkun umferðarslysa á árinu 1997.

Frá Bryndísi Hlöðversdóttur.



     1.      Hvernig skiptist sú fækkun umferðarslysa sem sagt er í skýrslu ráðherra um stöðu umferðaröryggismála að hafi orðið árið 1997, eftir umdæmum, þ.e.:
                  a.      Reykjavík,
                  b.      öðrum umdæmum?
     2.      Hvernig er skiptingin á milli þessara umdæma eftir:
                  a.      fjölda dauðaslysa,
                  b.      fjölda alvarlegra slysa,
                  c.      fjölda slasaðra?


Skriflegt svar óskast.