Ferill 400. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 766  —  400. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Sigríðar Jóhannesdóttur, Gísla S. Einarssonar og Kristínar Halldórsdóttur um ráðstöfunarfé ráðherra.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig hefur verið varið 5 millj. kr. framlagi til ráðstöfunar samkvæmt ákvörðun ráðherra á lið 07-199 í fjárlögum 1998, sundurliðað eftir verkefnum?

    Félagsmálaráðuneytið ávísar ekki styrkjum á fjárlagalið 07-199 Ráðstöfunarfé ráðherra. Fjárheimild þessa liðar er í lok hvers árs millifærð á fjárlagalið 07-999 1.90 Félagsmál, ýmis starfsemi. Um svar við fyrirspurninni vísast því til þskj. 764, svars við fyrirspurn um ráðstöf­un óskiptra liða í fjárlögum.