Ferill 501. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 813  —  501. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um rekstraröryggi gagnagrunns á heilbrigðissviði.

Frá Hjörleifi Guttormssyni.



     1.      Hvaða skilyrði ætlar ráðherra að setja um varðveislu afrits af gagnagrunninum og tryggingar í því sambandi, sbr. 10. tölul. 5. gr. laga um gagnagrunn á heilbrigðissviði?
     2.      Hverjir hafa verið skipaðir í nefnd um gerð og starfrækslu gagnagrunns á heilbrigðissviði?
     3.      Hvernig verður háttað eftirliti með því að gagnagrunnur á heilbrigðissviði verði ekki fluttur úr landi og að úrvinnsla úr honum fari einungis fram hér á landi?



Skriflegt svar óskast.