Ferill 319. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 850 — 319. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Guðmundar Hallvarðssonar um verkefni verkfræðistofa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða verkfræðistofur hafa unnið fyrir opinberar stofnanir frá árinu 1991? Hvaða verkefnum hafa þær sinnt?
2. Hverjar voru heildargreiðslur til verkfræðistofa á fyrrnefndu tímabili? Hvernig skiptist sú fjárhæð á milli verkfræðistofa:
a. eftir einstökum verkefnum,
b. eftir ráðuneytum?
Ráðuneytið telur að þær upplýsingar sem um er beðið í fyrirspurninni séu upplýsingar sem verði til í opinberri stjórnsýslu og séu því opinberar í skilningi 54. gr. stjórnarskráinnar og 49. gr. laga um þingsköp Alþingis. Hins vegar eru ekki allar upplýsingar sem þannig verða til aðgengilegar fyrir almenning. Það á sérstaklega við um þær upplýsingar sem takmarkaður aðgangur er að, sbr. 4.–6. gr. upplýsingalaga. Í ljósi þess og með hliðsjón af 5. gr. upplýsingalaga, er snertir einka- og fjárhagsmálefni einstaklinga og fyrirtækja, telur ráðuneytið ekki rétt að afhenda Alþingi umbeðnar upplýsingar sundurgreindar á einstaka aðila.
Til að gefa mynd af umfangi aðkeyptrar ráðgjafarþjónustu fyrir ríkið í heild hefur ráðuneytið aflað upplýsinga úr ríkisbókhaldi um bókfærðan kostnað við aðkeypta sérfræðiþjónustu á því tímabili sem um er spurt. Ekki er með öruggum hætti hægt að fá eingöngu upplýsingar um þjónustu keypta af verkfræðistofum þar sem kostnaðarskipting úr bókhaldi þykir ekki gefa einhlíta skiptingu þar á. Því var ákveðið að taka saman allan kostnað við aðkeypta þjónustu hjá opinberum stofnunum.
Á árunum 1991–97 námu greiðslur eftirfarandi fjárhæðum (m.kr.):
1991 2.211
1992 2.290
1993 2.243
1994 2.255
1995 2.803
1996 2.947
1997 3.265
Á árunum 1994–97 skiptist kostnaður á ráðuneyti með eftirtöldum hætti (m.kr.):
1994 | 1995 | 1996 | 1997 | |
Æðsta stjórn ríkisins | 34 | 72 | 55 | 43 |
Forsætisráðuneyti | 45 | 13 | 15 | 17 |
Menntamálaráðuneyti | 285 | 324 | 398 | 442 |
Utanríkisráðuneyti | 20 | 30 | 33 | 38 |
Landbúnaðarráðuneyti | 34 | 65 | 69 | 77 |
Sjávarútvegsráðuneyti | 71 | 40 | 77 | 96 |
Dómsmálaráðuneyti | 212 | 173 | 228 | 292 |
Félagsmálaráðuneyti | 48 | 75 | 4 | 84 |
Heilbrigðisráðuneyti | 411 | 799 | 716 | 716 |
Fjármálaráðuneyti | 648 | 694 | 672 | 750 |
Samgönguráðuneyti | 259 | 306 | 392 | 432 |
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti | 91 | 104 | 89 | 122 |
Hagstofan | 33 | 29 | 28 | 28 |
Umhverfisráðuneyti | 64 | 77 | 101 | 127 |
Samtals | 2.255 | 2.801 | 2.947 | 3.264 |
Eins og tölurnar bera með sér hefur aðkeypt þjónusta aukist talsvert á tímabilinu, enda hefur ríkisstjórnin stefnt að því að færa ýmsa þjónustu sem til þessa hefur verið unnin af ríkinu yfir til einkaaðila með útboðum. Hefur það skilað ríkissjóði umtalsverðum sparnaði á rekstrarkostnaði. Ráðuneytið vill enn fremur vekja athygli á að því er kunnugt um að Ríkisendurskoðun vinnur nú að gerð sérstakrar skýrslu um verklag og aðferðir við kaup á sérfræðiþjónustu af einkaaðilum.