Ferill 199. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 990  —  199. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um eftirlitsstarfsemi á vegum hins opinbera.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



     1.      Við 1. gr. Í stað orðanna „fyrirtækja og fjármálastofnana“ í 1. mgr. komi: fyrirtækja.
     2.      Við 2. gr.
       a.      Í stað orðanna „opinber eftirlitsstarfsemi“ í fyrri málslið komi: opinbert eftirlit.
       b.      Síðari málsliður orðist svo: Eftirlit á vegum hins opinbera má ekki leiða til mismununar né takmarka athafnafrelsi nema almannahagsmunir krefjist.
     3.      Við 3. gr.
       a.      1. mgr. orðist svo:
                  Þegar eftirlitsreglur eru samdar eða stofnað er til opinbers eftirlits skal viðkomandi stjórnvald meta þörf fyrir eftirlit, gildi þess og kostnað þjóðfélagsins af því. Slíkt mat getur m.a. falist í áhættumati, mati á alþjóðlegum skuldbindingum um eftirlit, mati á kostnaði opinberra aðila, fyrirtækja og einstaklinga, mati á hvort ná megi sama árangri með hagkvæmari aðferðum eða mati á þjóðhagslegu gildi eftirlits.
       b.      Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Enn fremur skulu slíkar greinargerðir liggja fyrir þegar þess háttar reglur um eftirlit eru staðfestar í öðrum tilvikum.
       c.      Síðari málsliður 3. mgr. falli brott.
     4.      Við 5. gr.
       a.      Upphafsmálsliður falli brott.
       b.      Í stað orðsins „eftirlitsstarfsemi“ í 2. tölul. komi: eftirliti.
       c.      Í stað orðsins „eftirlitsstarfsemi“ í 3. tölul. komi: opinberu eftirliti.
     5.      Við 6. gr.
       a.      Í stað orðsins „eftirlitsstarfsemi“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: eftirlit.
       b.      Í stað orðanna „eftirlitsstarfsemi“ og „hennar“ í 2. málsl. 1. mgr. komi: opinberu eftirliti, og: þess.
       c.      4. málsl. 1. mgr. orðist svo: Skipunartími nefndarinnar skal vera þrjú ár.
       d.      2. mgr. orðist svo:
                 Þeir aðilar sem eftirlit beinist að og aðrir þeir sem hagsmuni hafa af opinberu eftirliti geta óskað eftir athugun nefndarinnar á tilteknum þáttum þess. Ráðherrar geta sent nefndinni til umsagnar mál er varða opinbert eftirlit. Jafnframt getur nefndin átt frum­kvæði að athugunum á vissum þáttum eftirlitisins.
       e.      3. mgr. orðist svo:
                 Starf nefndarinnar skal miða að því að opinberar eftirlitsreglur séu í samræmi við ákvæði 3. gr. og að eftirlit á vegum hins opinbera sé jafnan eins hagkvæmt og kostur er fyrir þau fyrirtæki og einstaklinga sem eftirlitið beinist að og fyrir hið opinbera. Nefndin getur beint tilmælum til forsætisráðherra og annarra ráðherra um að eftirlits­reglur verði endurskoðaðar.
     6.      Við ákvæði til bráðabirgða.
       a.      Í stað orðanna „á næstu þremur árum eftir gildistöku laga þessara“ komi: gera áætlun um að.
       b.      Í stað orðsins „eftirlitsstarfsemi“ komi: opinbert eftirlit.
     7.      Fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um opinberar eftirlitsreglur.