Ferill 471. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


123. löggjafarþing 1998–99.
Þskj. 1130  —  471. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um raforkuver, nr. 60/1981, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 10. mars.)



1. gr.

    Við lögin bætist ný grein, 1. gr., svohljóðandi, og breytist númeraröð annarra greina sam­kvæmt því:
    Iðnaðarráðherra er heimilt að veita Landsvirkjun leyfi til að reisa og reka eftirtaldar virkj­anir:
     1.      Virkjun fallvatns sem veitt er um Vatnsfellsveitu úr Þórisvatni í Krókslón (Vatnsfellsvirkjun) með allt að 110 MW afli.
     2.      Virkjun á ármótum Köldukvíslar og Tungnaár við Búðarháls (Búðarhálsvirkjun) með allt að 120 MW afli.
     3.      Jarðvarmavirkjun í Bjarnarflagi við Námafjall (Bjarnarflagsvirkjun) með allt að 40 MW afli.
    Þá er iðnaðarráðherra heimilt að veita Rafmagnsveitum ríkisins í félagi með aðilum í Skagafirði leyfi til að reisa og reka virkjun Héraðsvatna við Villinganes í Skagafirði (Villinganesvirkjun) með allt að 40 MW afli.
    Veiting leyfa skv. 1. og 2. mgr. er háð niðurstöðum mats á umhverfisáhrifum og því að uppfyllt séu skilyrði annarra laga. Þá getur ráðherra sett nánari skilyrði í virkjunarleyfi.

2. gr.


    Í stað „1. gr.“ í 3. og 4. gr. laganna, er verða 4. og 5. gr., kemur hvarvetna: 1. og 2. gr.

3. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða I í lögunum fellur brott.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi. Við gildistöku þeirra fellur brott lokamálsliður 1. mgr. 6. gr. laga nr. 42/1983, um Landsvirkjun, með áorðnum breytingum. Við 2. mgr. sömu greinar bætist: Vatnsfellsvirkjun, með allt að 110 MW afli, Búðarhálsvirkjun, með allt að 120 MW afli, og Bjarnarflagsvirkjun, með allt að 40 MW afli.