Ávarp starfsaldursforseta

Þriðjudaginn 08. júní 1999, kl. 13:57:34 (2)

1999-06-08 13:57:34# 124. lþ. 0.3 fundur 3#B ávarp starfsaldursforseta#, Aldursforseti HÁs
[prenta uppsett í dálka] 0. fundur, 124. lþ.

[13:57]

Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):

Ég býð alla hv. alþingismenn, sem kjörnir voru í alþingiskosningunum 8. maí, velkomna til starfa. Sérstaklega vil ég bjóða velkomna þá 15 nýju alþingismenn sem ekki voru hér starfandi á Alþingi þegar það lauk störfum í mars sl.

Ég vil láta í ljós þá ósk að störf Alþingis verði okkur alþingismönnum til sóma og landi og þjóð til heilla.

Fyrir hönd alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis sem hefur undirbúið þinghaldið af mikilli kostgæfni og óska þess að við eigum góða samvinnu við það eins og endranær.