Forseti (Halldór Blöndal):
Ég met mjög mikils árnaðaróskir forseta til handa og þau ummæli að vilja eiga við hann gott samstarf. Samkomulag var um að hér yrði talað um störf þingsins og ekkert er við því að segja. Úrskurðir og störf ráðherra eru auðvitað þess eðlis að eðlilegt er að þau sæti gagnrýni þegar ástæða er til. En ég legg mikið upp úr því að farið sé eftir fundarsköpum sem hv. þingmaður þekkir og þingheimur á að þekkja.