1999-06-10 15:06:06# 124. lþ. 2.2 fundur 2. mál: #A samningur milli Íslands, Noregs og Rússlands um þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs# þál., Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 2. fundur, 124. lþ.

[15:06]

Forseti (Halldór Blöndal):

Forseti vill taka fram af þessum sökum að stjórnarandstaðan lét í ljós óánægju sína yfir því að sjútvrh. yrði ekki við þegar við áttum fund hér fyrr í dag. Haft var samband við hæstv. starfandi sjútvrh. en vegna misskilnings hefur hann orðið aðeins of seinn. Umræður hafa hins vegar dregist og ég hygg að við getum öll unað því að hæstv. fjmrh., í fjarveru sjútvrh., var við því búinn að vera við umræðuna.