Gísli S. Einarsson:
Herra forseti. Ég beini máli mínu til hæstv. heilbrrh. og spyr að gefnu tilefni þar sem fram hefur komið að það stefni í mikinn rekstrarvanda hjá Ríkisspítölunum, þ.e. Landspítala og Sjúkrahúsi Reykjavíkur:
Hver er áætlaður halli þessara stofnana, annars vegar núna og hins vegar á ársgrundvelli?
Síðan spyr ég: Hver er staða heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni? Hverjar eru horfurnar?
Heyrst hefur að þar vanti hátt í 2 milljarða. Ef svo er er þá ekki meiningin að kalla saman fjárln. til að kanna þá alvarlegu stöðu sé það reyndin og tölurnar sem ég nefndi réttar?