Rekstrarstaða heilbrigðisstofnana

Mánudaginn 14. júní 1999, kl. 13:42:03 (147)

1999-06-14 13:42:03# 124. lþ. 4.1 fundur 48#B rekstrarstaða heilbrigðisstofnana# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 124. lþ.

[13:42]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Vegna fyrirspurnar hv. þm. Gísla S. Einarssonar er því til að svara, eins og ég veit að allur þingheimur veit, að laun heilbrigðisstarfsmanna hafa hækkað verulega á undanförnum missirum og það setur auðvitað strik í reikninginn hjá sjúkrahúsum, dvalarheimilum og hjúkrunarheimilum. Það er verið að fara nákvæmlega yfir þessa dagana en við höfum ekki nákvæmar tölur handbærar. Hver stofnun fyrir sig vinnur sína heimavinnu og munu senda niðurstöðurnar inn til heilbrrn. Fjárln. mun að sjálfsögðu fá þær til umfjöllunar.