Uppsagnir grunnskólakennara

Mánudaginn 14. júní 1999, kl. 13:58:12 (160)

1999-06-14 13:58:12# 124. lþ. 4.1 fundur 51#B uppsagnir grunnskólakennara# (óundirbúin fsp.), ÞBack
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 124. lþ.

[13:58]

Þuríður Backman:

Hæstv. forseti. Þessi milljarður sýnir okkur kannski frekar en margt annað að vandinn var uppsafnaður, hann var mikill fyrir og milljarðurinn hefur greinilega bara ekki dugað til.

Ég ætla að vona að það náist sátt til frambúðar í grunnskólum landsins þannig að hægt verði að standa við fyrirheit allra flokka um að menntun sé það sem við þurfum að byggja á og hér verði hægt að standa að öflugu grunnskóla- og framhaldsskólanámi.