Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Það er alveg rétt hjá hv. þm. að vissulega þarf að skoða eignirnar á móti þegar við erum að ræða skuldir heimilanna, vegna þess að eignastaðan breytist auðvitað líka. En hv. þm. verður að athuga það, af því mér fannst hann nú hálffagna því að fasteignaverðið væri að hækka, bæði það sem ég nefndi áðan, að ungt fólk sem er að byrja að eignast húsnæði sitt fær þetta heldur betur í hausinn, heldur betur skell að þurfa að setja eina til eina og hálfa milljón meira í útborgun en var hér áður --- sem er nú enginn smápeningur fyrir ungt fólk sem er að byrja búskap sinn. Ef fasteignaverð hækkar þá er í flestum tilvikum, þó það sé alls ekki alltaf --- ekki hjá eldra fólki --- að fólk er yfirleitt að stækka við sig. Það lendir því auðvitað í þessari hækkun líka.
Ég skal bara geyma mér það, herra forseti, að ræða við hv. þm. um þá forsjárhyggju, sem hann nefndi, þegar við förum á næstu mánuðum og missirum að ræða um þá miklu greiðsluerfiðleika sem þetta nýja húsnæðiskerfi mun valda hjá heimilunum í landinu.