Vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Þriðjudaginn 15. júní 1999, kl. 14:54:16 (292)

1999-06-15 14:54:16# 124. lþ. 6.1 fundur 9. mál: #A vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.# frv., PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 6. fundur, 124. lþ.

[14:54]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. gleymdi alveg að geta um vaxtabæturnar, sem eru skuldahvetjandi, varðandi mat hennar á skuldum heimilanna. Hún gleymdi líka að geta þess að lækkun vaxta, umtalsverð lækkun vaxta á langtímalánum, hefur hækkað gengi eða minnkað afföll af húsbréfum þannig að nú eru þau seld með yfirverði. Það aftur hjálpar unga fólkinu miklu meira en sú hækkun á fasteignaverði sem kemur sem mínus hjá unga fólkinu.