Frestun á fundum Alþingis

Miðvikudaginn 16. júní 1999, kl. 14:13:30 (401)

1999-06-16 14:13:30# 124. lþ. 9.1 fundur 12. mál: #A frestun á fundum Alþingis# þál., forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 124. lþ.

[14:13]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Þessi ræða var ekki um dagskrármálið. Þetta hefur verið rætt áður. Ég tel enga hættu á ferðum. Ef til þess kemur, sem ekkert bendir til, að efna þurfi til kosninga í bráð mun löggjafinn, hver sem hann verður, kallaður saman eða bráðabirgðalöggjafinn sjá til að úr þessari vöntun verði bætt.