Þingfrestun

Miðvikudaginn 16. júní 1999, kl. 14:17:51 (406)

1999-06-16 14:17:51# 124. lþ. 9.93 fundur 73#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 124. lþ.

[14:17]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 124. löggjafarþings, frá 16. júní 1999 til septemberloka.

Gjört á Bessastöðum, 16. júní 1999.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 124. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, allra heilla.