JHall fyrir JónK

Þriðjudaginn 01. febrúar 2000, kl. 13:38:15 (3759)

2000-02-01 13:38:15# 125. lþ. 53.93 fundur 262#B JHall fyrir JónK#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 53. fundur, 125. lþ.

[13:38]

Forseti (Halldór Blöndal):

Þá hefur borist svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp, að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, Seyðisfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Jón Kristjánsson, 3. þm. Austurl.``

Jónas Hallgrímsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.